|
6. árgangur Sunnulækjarskóla Hér verður að finna efni tengt skólastarfi 6. árgangs í Sunnulækjarskóla á Selfossi. Tilkynningar, bréf og annar fróðleikur kemur einnig til með að rata hingað inn. |
|
Færslur: 2007 Maí02.05.2007 18:22Danskur gestakennariÁ morgun fimmtudag og á föstudag verður hún Birgitte hjá okkur í 6. árgangi. Birgitte er gestakennari sem hefur farið vítt og breitt um Suðurlandi í vetur. Við fáum að njóta krafta hennar í tvo daga þó svo að krakkarnir séu ekki farnir að læra dönsku. Birgitte leit við í leikilistarsmiðjunni í dag, verður í enskusmiðjunni á morgun - sem breytist í dönskusmiðju í bland en verður svo einnig með 6. árgangi sér á morgun og hinn. Við erum alsæl með þessa heimsókn enda gaman að kynnast nýjum tungumálum.
Skrifað af Ingveldi 02.05.2007 18:17StærðfræðiprófKomið þið sæl kæru nemendur og foreldra Mánudaginn 7. maí verður stærðfræðipróf hjá okkur í 6. árgangi. Áhersla verður á námsefni vetrarins og áherslur hvers og eins í stærðfræðinni. Vonandi náum við að láta efni fylgja með heimanáminu á morgun til þess að nemendur geti æft sig svolítið heima. Annars á ekki að þurfa mikinn undirbúning, heldur létta upprifjun. Bestu kveðjur Ingveldur Skrifað af Ingveldi
Flettingar í dag: 2 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 0 Gestir í gær: 0 Samtals flettingar: 21625 Samtals gestir: 10132 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:54:08 |
Eldra efni Tenglar |